Leiðbeiningar um notkun Evrópska sjúkratryggingakortsins í ESB-löndunum 28 ásamt Íslandi, Liechtenstein, Noregi og Sviss. Þar er að finna almennar upplýsingar um kortið, neyðarsímanúmer, þær meðferðir og þann kostnað sem kortið nær til, hvernig sækja eigi um endurgreiðslu og hvert leita skuli þegar kort týnist. Leiðbeiningarnar eru í boði á 25 tungumálum og auðvelt er að skipta á milli þeirra.
Athugið: Ekki er hægt að búa til kort eða hlaða niður af netinu til notkunar. Kortið er gefið út ókeypis hjá Tryggingastofnun ríkisins. Það kemur ekki í stað ferðatrygginga.
Síðast uppfært – Desember 2015
http://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=702&langId=en&videosId=2656&vl=en&furtherVideos=yes