Þarftu að muna eftir einhverju? Prófaðu Microsoft-minnismiða. Þeir eru einföld leið til að hripa niður atriði sem á að gera síðar, þegar það hentar betur. Minnismiðar gera þér kleift að búa til glósur, skrifa, teikna eða setja inn mynd, sníða texta og festa þá á skjáborðinu, færa þá þar um, loka þeim á minnismiðalistanum og samstilla á milli tækja og forrita á borð við OneNote Mobile, Microsoft Launcher fyrir Android og Outlook fyrir Windows.