Þessi útgáfa af Tobii Dynavox Snap Core First forritinu er ætluð:
- Notendum sem vilja nota Snap Core First forritið án tals endurgjaldslaust. Þessir notendur geta aflæst talvirkni með kaupum í forriti hvenær sem er.
- Notendum sem hafa keypt Tobii Dynavox tæki. Notendur í þessum hópi munu hafa fulla forritsvirkni (þar á meðal tal) þegar forritið er (endur)uppsett í Tobii Dynavox tækinu þeirra.
Snap Core First er leiðandi TST forrit sem byggt er á táknum fyrir þá sem ekki tjá sig með orðum eða þurfa stuðning við talað mál , þar á meðal einstaklinga með einhverfu, Downs-heilkenni, Rett-heilkenni, heilalömun, málstol og greindarskerðingu. Þetta TST forrit er hannað til að hjálpa notendum að hefja tjáskipti á stuttum tíma og leiða þá frá þeirra fyrstu orðum til læsis. Snap Core First heldur notendum við efnið á meðan þeir læra og byggja upp tungumálakunnáttu sína. Einnig er auðvelt fyrir foreldra, kennara og talmeinafræðinga að læra hvernig nota á forritið.
Eftirfarandi tungumál eru fáanleg á Snap Core First: danska, enska (US), enska (UK), enska (US)/spænska fyrir tvítyngda, franska (Kanada)/enska (US) fyrir tvítyngda, franska (Frakkland), hollenska, íslenska, ítalska, kínverska (einfölduð), norska, portúgalska (Brasilía), portúgalska (Portúgal), spænska (Rómanska Ameríka)/enska (US) fyrir tvítyngda, spænska (Spánn), Spánn (Rómanska-Ameríka), sænska, tékkneska, þýska (Sviss), þýska (Þýskaland)
„Þetta forrit hefur umbylt bekknum mínum. Nemendur mínir taka hraðari framförum í námi, talað mál hefur aukist, skýrleiki hefur aukist og slæm hegðun hefur minnkað. – Kim L, kennari
Snap Core First auðveldar að:
• Breyta rúðustærðum (12 valmöguleikar)
• Draga og sleppa með almennum aðgerðum
• Tengja síður
• Finna orð hraðar þökk sé sérstakri leitarvél