Með Málun í þrívídd er einfalt að hleypa sköpunargáfunni út og vekja hugmyndir til lífsins, hvort sem þú ert listamaður eða áhugakrotari. Gamla góða forritið Málun hefur fengið yfirhalningu með nýju útliti og yfirbragði og helling af nýjum penslum og verkfærum. Nú er líka hægt að skapa í öllum víddum og búa til tvívíð meistaraverk eða þrívíddarlíkön sem hægt er að leika sér með frá öllum sjónarhornum.