Við bjóðum Windows Phone viðskiptavinum að taka þátt í að prófa Íslandsbanka Appið fyrir snjallsíma með Windows Phone 10. Í þessari beta útgáfu fá viðskiptavinir yfirlit yfir innistæðureikninga auk þess að geta millifært með Hraðfærslum á þekkta viðtakendur og greitt ógreidda reikninga.
Útgáfan verður í stöðugri þróun og fleiri aðgerðir úr Íslandsbanka Appinu bætast við á næstu mánuðum.
Við sækjumst sérlega eftir því að fá endurgjöf frá Windows notendum um hvað mætti betur fara. Hægt er að veita endurgjöf á netfangið islandsbanki@islandsbanki.is