Samsung File Tracker er hugbúnaður sem skipuleggur og finnur skrár út frá tímasetningum. Margt fólk man hvenær það bjó til, afritaði eða breytti skjölum, myndum og öðrum skrám og þannig er Samsung File Tracker lausnin sem hjálpar fólki að finna það sem það er að leita að á einfaldari máta.
Fólk getur búið til merki og flokkað skrár undir sama merki. Á þann hátt þarf ekki að færa eða afrita skrár í sömu möppu til að hafa yfirsýn yfir þær. Nóg er að búa til merki og tengja viðkomandi skrár við sama merkið.
Samsung File Tracker býður upp á tengingu á milli viðburða í dagatölum fólks og skráa. Stundum eru skrár tengdar viðburðum í dagatali, svo sem fundum eða kynningum. Þá er einfalt að tengja saman viðburði og skrár, án þess að þurfa að búa til sérstaka möppu, og sækja svo skrárnar á fljótlegan máta skömmu áður en viðburðurinn hefst.
Þú getur náð enn meiri afköstum með Samsung File Tracker á Samsung Galaxy Book.