Spilaðu HEVC-myndbönd (High Efficiency Video Coding) í hvaða myndbandsforriti sem er í Windows 10-tækinu þínu. Þessar viðbætur eru hannaðar til að nýta vélbúnaðareiginleika sumra nýrri tækja, þar á meðal þeirra sem eru með 7. kynslóð Intel Core-örgjörva eða nýrri og nýrri skjákjarna, til að bjóða upp á stuðning við efni í 4K og Ultra HD. Fyrir tæki sem ekki eru með vélbúnaðarstuðning fyrir HEVC er boðið upp á hugbúnaðarstuðning en spilunargæði geta verið breytileg, allt eftir myndupplausn og afköstum tölvunnar. Þessar viðbætur gera þér einnig kleift að kóða HEVC-efni í tækjum sem ekki eru með myndkóðara sem nýtir vélbúnað.