Kate er fjölskjala og fjölglugga textaritill frá KDE. Hann bíður upp á hluti eins og kóðafellingar, textalitun, virk línuskipti, innfellda skipanalínu, ítarlegt viðmót fyrir viðbætur og stuðning við skriftur.
Eiginleikar:
* Fjölskjala viðmót, kljúfanlegir gluggar, flipar í gluggum
* Stafsetningarkönnun
* CR, CRLF, LF stuðningur við nýja línu
* Kóðunarstuðningur (utf-8, utf-16, ascii o.s.frv.)
* Kóðunarumbreyting
* Leitað og skipt út á grunni reglulegra segða
* Öflug textalitun og sviga- og klofasamsvörun
* Kóða- og textafellingar
* Stuðningur við óendanlega afturköllun og endurtekningu
* Blokkarvalstilling
* Sjálfvirkur inndráttur
* Stuðningur við sjálfvirka textaútfyllingu
* Skeljasamþætting
* Stuðningur við fjölda samskiptastaðla (http, ftp, ssh, webdav o.s.frv.)
* Viðmót fyrir viðbætur fyrir forritið og ritilshlutann
* Stillanlegir flýtilyklar
* Innbyggð skipanalína
* Stuðningur við JavaScript