Nina er þétt leturgerð með svipaðri hönnun og Verdana-leturgerðin. Nina var hönnuð til að koma fleiri orðum fyrir á hverri tommu á skjáum smátækja. Hönnunin er ekki nógu þétt til þess að hún geti kallast Verdana Condensed, en leturgerðirnar tvær eru engu að síður náskyldar.
Leturgerðirnar eru hannaðar fyrir evrópsk tungumál sem rituð eru með latnesku, grísku og kyrillísku letri.
Eftirfarandi útlit er innifalið:
Nina
Nina Italic
Nina Bold
Nina Bold Italic