Öryggi á netinu einfaldað fyrir þig og fjölskyldu þína. Forritið Microsoft Defender verndar fjölskyldu þína gegn netógnum í öllum tækjum. Microsoft Defender er eingöngu í boði með áskrift að Microsoft 365 fyrir einstaklinga eða fjölskyldur.
Í tölvunni þinni vinnur Microsoft Defender með innbyggðu Windows-öryggi til að bjóða frekari tækjavernd í Android-, iOS- og Mac-tækjum. Með forritinu á milli tækja getur þú stjórnað og fylgst með öryggisstöðu einstaklinga og fjölskyldu þinnar á netinu á þægilegu stjórnborði. Vertu öruggari með tilkynningum í rauntíma, öryggisábendingum og sérfræðileiðsögn sem bjóða þér ráðleggingar sem auðvelt er að fylgja. Til að hefjast handa skaltu sækja forritið og skrá þig inn með Microsoft-reikningnum þínum. Þú þarft virka áskrift að Microsoft 365 fyrir einstaklinga eða fjölskyldu til að virkja Defender í tækjunum þínum.
Microsoft Defender er einnig í boði fyrir Android, iOS- og Mac-tæki. Í forritinu er hægt að senda boð um að sækja Microsoft Defender í öðrum tækjum. Þú getur einnig nálgast stjórnborðið á auðveldan hátt í vafra þegar þú ert á ferðinni.