Microsoft Dynamics 365 Business Central er alhliða viðskiptastjórnunarlausn sem auðveldar litlum og meðalstórum fyrirtækjum að tengja saman fjármála-, sölu-, þjónustu- og rekstrarteymi sín í einu notendavænu forriti. Flýttu fyrir innleiðingu með því að nota ítarlegar innleiðingarleiðbeiningar, snjalleiginleika fyrir næstbestu aðgerð út frá samhengi, framsækna gervigreindareiginleika og samhæfi við kunnuglegt Microsoft 365. Færðu þig af öryggi yfir í skýið til að fínstilla stafræn viðskiptaferli og opna nauðsynlegar upplýsingar til að aðlagast hraðar, vinna á snjallari hátt og skila betri afköstum. Með hjálp Dynamics 365-samstarfsaðila geturðu á einfaldan hátt sniðið forritið að þínum einstöku viðskiptaþörfum eða þörfum starfsgreinarinnar. Hver einasti dagur ber eitthvað nýtt í skauti sér og því er mikilvægt að búa sig undir það sem koma skal og opna á endalausa möguleika með Business Central.
Hraðari aðlögun
Vertu fljótari að búa til og taka í notkun viðskiptamódel með sveigjanlegri innleiðingu, hreyfanleika, áreiðanleika, öryggi og aðlögunarhæfri Microsoft skýjalausn sem vex í takt við þitt fyrirtæki.
Snjallari vinnubrögð
Auðveldaðu fólki að vinna saman, afkasta meiru og hafa meiri áhrif með innsýn sem hægt er að bregðast við og samvirkni með Microsoft 365 þar á meðal Teams, Word, Excel og Outlook.
Meiri árangur
Hámarkaðu afköstin með leiddu verkflæði, stjórnun og rauntímamælingum sem knýja fram stöðugar umbætur, flýta fyrir frágangi fjármála og hraða ferlum.