Búðu til falleg fréttabréf, skjöl og kynningar á nokkrum mínútum.
-- Einfalt að setja inn efni, hvaðan sem er --
Það er afar auðvelt að draga inn myndir, myndbönd og annað efni - Sway vinnur með tækinu þínu, samfélagsmiðlum og vefnum.
-- Fáðu tillögur í leitarniðurstöðum sem byggja á þínu efni --
Sway stingur upp á leitarorðum sem hjálpa þér að finna viðeigandi myndir, myndbönd og fleira sem þú dregur beint inn í skjalið. Þú þarft ekki lengur að hoppa milli forrita og vefsíðna til að finna það sem þig vantar.
-- Sparaðu dýrmætan tíma með fyrirhafnarlausri hönnun --
Hönnunarvél Sway tekur efni saman á fallegan hátt; leggðu lokahönd á útlitið til að finna þann stíl sem virkar fyrir þig.
-- Fangaðu athygli áhorfenda með vinnusvæði á netinu --
Sway lagar sig sjálfkrafa að hvaða skjá sem er, svo það lítur alltaf vel út, og þú getur deilt því með einfaldri vefslóð.
-- Gerðu meira í Sway með Office 365 --
Bættu við skrám af OneDrive-reikningnum þínum á einfaldan hátt og breyttu efni úr Word eða OneNote yfir í Sway með örfáum smellum.