OneNote er stafræna minnisbókin þín til að grípa og skipuleggja allt þvert á þín tæki. Hripaðu niður þínar hugmyndir, fylgstu með glósum í kennslustundum og á fundum, klipptu af vefnum, eða búðu til verkefnalista, ásamt því að teikna og rissa þínar hugmyndir.
SLÁ INN, SKRIFA OG TEIKNA
• Skrifa hvar sem er á síðuna og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.
• Notaðu pennann sem fylgdi tækinu eða fingurinn til að skrifa og teikna með mörgum gerðum penna og merkipenna.
• Skrifa minnispunkta á hvítum grunni eða bæta við rúðuneti eða strikuðum línum til að auðvelda teikningu og skrift.
GRÍPA HVAÐ SEM ER
• Skrá minnispunkta á fljótvirkan hátt með því að smella á hnapp fyrir minnispunkta í aðgerðamiðstöð Windows og á studda penna*
• Senda vefsíður, uppskriftir, skjöl og fleira til OneNote með því að nota Share Charm, Microsoft Edge, Clipper, Office Lens og tylft annarra forrita og þjónustu.
VERTU SKIPULAGÐUR
• Leita og finna hvað sem er í þínum minnispunktum, þar á meðal handskrifuð atriði og texta í myndum.
• Finna á fljótvirkan hátt nýjustu minnispunktana þína, með sjónrænni forskoðun á hverri síðu.
• Aðgengi með einum smelli að verkefnalistum með gátreitum
GERT FYRIR HÓPVINNU
• Samnýta minnisbækur og minnispunkta með samstarfsmönnum, fjölskyldu og vinum
• Skipuleggja frí, samnýta minnispunkta frá fundum eða punkta frá fyrirlestrum með fólki í kring um þig
• Breyta minnispunktum saman og sjá breytingar í rauntíma
ÁVALLT MEÐ ÞÉR
• Minnispunktarnir ferðast með þér hvort sem þú ert heimavið, á skrifstofunni eða á ferðinni
• Minnispunktarnir eru vistaðir sjálfvirkt og samstilltir í skýinu, svo þú ert ávallt með það nýjasta á öllum þínum tækjum
• Minnisbækurnar þínar líta kunnuglega út á öllum þínum tækjum, svo þú getur haldið áfram þar sem þú hættir á tölvunni þinni, spjaldtölvu eða fartæki.
Skoðaðu vefsíðuna, líkaðu við okkur á Facebook, fylgdu okkur á Twitter, og komdu í heimsókn á bloggið varðandi nýjustu fréttir:
onenote.com
facebook.com/onenote
twitter.com/msonenote
blogs.office.com/onenote
*Sumt af viðbótarbúnaði selt sérstaklega, byggt á vélbúnaði