Nafnið AccuWeather var ekki út í loftið. Um leið og við hönnuðum aðferðir til að gera sem nákvæmastar veðurspár, þróuðum við einnig vörumerkið „AccuWeather“, sem vísar til verðmætustu vörunnar okkar: nákvæmra veðurspáa. Sem fyrirtæki leggjum við hart að okkur á hverjum degi við að viðhalda orðspori okkar sem heimsins bestu og nákvæmustu uppsprettu veðurupplýsinga.
Á hverjum degi er áætlað að fleiri en 1,5 milljarður manna reiði sig á AccuWeather við að skipuleggja líf sitt, verja fyrirtæki sín og fá meira út úr deginum. AccuWeather veitir einstæðar veðurspár á yfir 100 tungumálum og mállýskum með Superior Accuracy™ fyrir alla staði í heiminum - fleiri staði en nokkur annar opinber eða einkarekinn veðurgrunnur getur veitt.
AccuWeather býður upp á það allra nýjasta í veðurfréttum og -upplýsingum, þ.m.t. einstæða og einkaleyfisvarða fídusa á borð við AccuWeather MinuteCast®, úrkomuspá næstu tveggja tíma, mínútu fyrir mínútu, miðað við nákvæma staðsetningu, s.s. heimilisfang eða GPS-staðsetningu. Þessi fídus býður upp á 120 mínútna yfirlit um tegund og magn úrkomu, hvenær hún hefst og hvenær henni lýkur á uppgefinni staðsetningu. MinuteCast® er virkt fyrir meginland Bandaríkjanna, Kanada, Svíþjóð, Danmörk, Bretland, Írland, Japan, Frakkland, Spán, Þýskaland, Belgíu, Andorra, Noreg, Finnland, Eistland, Sviss, Holland, Lúxembúrg, Gíbraltar, Liechtenstein og listinn fer stækkandi.
Vertu tengd/ur nýjustu veðurfregnum AccuWeather sem aðstoða þig við að skipuleggja daginn. Meðal efnis:
• Núverandi veðurathuganir
• Veðuryfirlit og nánari veðurupplýsingar
• Staðbundin/skammtíma veðurspá
• Lifandi ratsjár- og gervihnattamyndir
• Myndbönd
• Meira
*Efni er breytilegt eftir staðsetningum.