Gerðu meira með Microsoft OneDrive, sama hvar þú ert. Sæktu og deildu skjölum, myndum og öðrum skrám úr Windows 10-símanum, tölvunni (PC eða Mac) og öðrum tækjum sem þú notar. Notaðu Office-forrit fyrir fartæki til að geta haldið áfram vinnunni hvar sem er, einnig í samvinnu við aðra. Með OneDrive-forritinu fyrir Windows 10 geturðu á auðveldan hátt unnið með einkaskjöl og vinnuskjöl þegar þú ert á ferðinni.
• Notaðu ókeypis geymslusvæði á netinu til að vista og deila skrám.
• Opnaðu og vistaðu OneDrive-skrár í Office-forritum á fljótlegan hátt, t.d. í Word, Excel, PowerPoint og OneNote.
• Notaðu sjálfvirka merkingu til að finna myndir á auðveldan hátt.
• Deildu albúmum með eftirlætismyndum og -myndböndum.
Athugaðu: Til að geta skráð þig inn á OneDrive for Business verður stofnunin/fyrirtækið að vera með viðeigandi áskriftarleið fyrir SharePoint Online eða Office 365. Þú getur ekki skráð þig inn í gegnum staðbundna notendaskrá.
Þetta forrit er frá Microsoft. Gögn sem látin eru í té með notkun þessarar verslunar og þessa forrits geta verið aðgengileg Microsoft og þau kunna að vera flutt, geymd og meðhöndluð í Bandaríkjunum eða öðru landi þar sem Microsoft eða samstarfsaðilar þess hafa starfsstöðvar.