JW Library er app gefið út af Vottum Jehóva. Með appinu er hægt að bera saman mismunandi biblíuþýðingar og lesa biblíunámsbækur og -bæklinga.
Biblían
• Veldu á milli sex biblíuþýðinga.
• Berðu saman vers í öllum þýðingunum með því að velja versanúmer.
• Skoðaðu neðanmálsgreinar og tilvísanir með því að velja tilheyrandi merki í textanum.
Að rata um appið
• Strjúktu til hægri eða vinstri til að fletta í gegnum ritið sem þú ert að lesa.
• Settu bókamerki við vers eða kafla svo að þú getir fundið staðinn aftur seinna.
• Skoðaðu ferilinn til að finna efni sem þú hefur nýlega lesið.
• Notaðu leitina til að finna orð eða orðasambönd í ritinu sem þú ert að lesa.