Myndavélarforritið er nú hraðvirkara og einfaldara en nokkru sinni fyrr. Smelltu einfaldlega af til að taka frábærar myndir sjálfkrafa í hvaða tölvu eða spjaldtölvu sem er sem keyrir á Windows 10.
• Gerðu hlé á upptöku myndbands og haltu áfram hvenær sem þú vilt – myndavélarforritið getur límt þau öll saman í eitt myndband til að þú getir losnað við leiðinlegu hlutana og fangað aðeins það sem skiptir máli.
• Notaðu tímastillinguna til að koma þér fyrir á myndinni.
• Stilltu upp fullkominni mynd með rammanetinu.
• Vistaðu öryggisafrit af myndunum þínum sjálfkrafa á OneDrive til að þú getir nálgast þær úr hvaða tæki sem er, þar á meðal símanum.
Og ef vélbúnaður tækisins styður það getur þú:
• Sparað þér tíma með því að aka mynd af töflu í stað þess að skrifa allt niður – myndavélarforritið gerir myndina læsilegri. *(1,2)
• Hættu að nota skannann. Taktu einfaldlega mynd af hvaða skjali sem er – nýjar stillingar bæta ljósmyndina til að gera hana skýrari. *(1,2)
• Fangaðu meira úr umhverfinu með því að taka víðmynd. *(1,2)
• Taktu upp hnökralaus myndbönd þökk sé stafrænni hreyfijöfnun. *(4)
• Fangaðu víðara skerpusvið og meiri smáatriði á bæði björtum og dökkum svæðum með HDR (breiðu birtusviði). *(4)
*1 Krefst myndavélar aftan á tæki
*2 Krefst myndavélar sem styður 1080p eða hærri upplausn
*3 Krefst myndavélar sem styður 4K-upplausn
*4 Í boði í völdum tækjum með studdum vélbúnaði