Með Microsoft Dynamics NAV fyrir Windows upplifirðu kunnuglegt Dynamics NAV í fersku og nútímalegu viðmóti sem hannað er fyrir fartæki og tölvur.
Microsoft Dynamics NAV er alþjóðleg viðskiptalausn sem býður litlum og miðlungsstórum fyrirtækjum upp á meiri stjórn á fjármálunum og einfaldari aðfangakeðju, framleiðslu og rekstur. Lausnin er auðveld í innleiðingu og notkun og gerir þér kleift að ná markmiðum um vöxt.
Taktu góðar ákvarðanir byggðar á nýjustu viðskiptagögnunum og komdu hlutunum í verk eftir vinnu, heima við eða á ferðinni með Dynamics NAV fyrir Windows. Hér er á ferðinni fullkominn félagi fyrir tæknifræðinga í þjónustudeild, sölufólk, stjórnendur, aðila sem taka ákvarðanir eða aðra innan fyrirtækisins sem þurfa aðgang að Dynamics NAV í fartæki með snertiskjá. Dynamics NAV fyrir Windows virkar einnig vel í tölvum og í spjaldfartölvum sem hentar vel fyrir endurskoðendur og annað starfsfólk á skrifstofu. Öðlastu innsýn í alla kima rekstursins með einu af mörgum gröfum sem hægt er að nálgast á upphafsskjá Dynamics NAV. Pikkaðu til að kafa niður á upplýsingar um viðskiptamenn, lánardrottna, birgðir eða önnur gögn. Stofnaðu reikninga og tilboð á skjótan máta og sendu í tölvupósti með örfáum pikkum.
Í spjaldtölvum þarf aðgang að Microsoft Dynamics NAV 2015 eða nýrra.
Í símum og tölvum þarf aðgang að Microsoft Dynamics NAV 2016 eða nýrra.
TILKYNNING: Eftir útgáfu Windows 10 Mobile verður stuðningi við Windows Phone 8.1 hætt frá og með næstu uppfærslu, sem áætluð er á fyrri hluta 2017.
Eiginleikar
• Haltu utan um fjármálin, viðskiptamenn, lánardrottna, birgðir og önnur gögn í Microsoft Dynamics NAV sem þú hefur aðgang að.
• Samþykktu skjöl eða sendu þau til samþykkis.
• Fáðu yfirlit yfir reksturinn á upphafsskjánum.
• Pikkaðu og strjúktu til að kalla fram gögn og kafa niður á upplýsingar.
• Notaðu myndavél tækisins til að hlaða myndum inn á Dynamics NAV.
• Skráðu þig inn með viðeigandi Office 365-reikningi eða viðeigandi skilríkjum í Dynamics NAV.
• Flyttu gögn út í Microsoft Excel til að deila og til að vinna með samstarfsfólki.
• Notaðu tvö forrit hlið við hlið til að geta skoðað gögn auðveldlega um leið og þú ert t.d. í samtali í Skype.