Microsoft Excel Mobile er besta forritið til að skoða, uppfæra og búa til töflureikna á Windows-símum og -spjaldtölvum (með 10,1 tommu eða minni skjá). *12. janúar 2021 mun þetta forrit ekki lengur njóta stuðnings í símum sem nota Windows 10 Mobile. Frekari upplýsingar eru á https://aka.ms/OfficeWindows10MobileEOS.*
*** Til að búa til og breyta töflureiknum á borðtölvum, fartölvum, stórum spjaldtölvum og með Continuum fyrir síma þarf Office 365-áskrift. Frekari upplýsingar koma fram í eftirfarandi kröfum. ***
TÖFLUREIKNAR Á FERÐINNI
• Töflureiknar líta vel út í símanum eða spjaldtölvunni: Formúlur, gröf, töflur og skilyrt snið eru öll þarna.
• Haltu áfram þar sem frá var horfið: Excel man hvar þú varst, jafnvel þótt þú flytjir þig á milli tækja.
SKOÐAÐU OG BREYTTU HVAR SEM ER
• Með samþættingu við OneDrive, SharePoint og Dropbox hefurðu alltaf aðgang að skránum þínum.
• Gerðu breytingar í snatri með einni snertingu. Dragðu til dálka og færðu vinnublöð. Pikkaðu til að bæta við gögnum, sníða gröf og fara um stóra töflureikna.
• Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að vista. Þegar þú gerir breytingar í spjaldtölvunni eða símanum vistar Excel breytingarnar fyrir þig.
• Deildu töflureiknum með nokkrum skrefum og bjóddu öðrum að fara yfir þá.
• Finndu réttu skipunina í hvelli. Með „Segðu mér“ finnurðu það sem þú leitar að.
BÚÐU TIL SKJÖL
• Notaðu símann sem tölvu til að vinna með töflureikna á stórum skjá.
• Settu verkefnin þín í gang með sniðmátum sem spara tíma.
• Bættu við formúlum með lyklaborði á skjánum sem hefur algeng föll innbyggð.
• Notaðu kunnuglega valkosti fyrir snið og útlit til að koma hugmyndum þínum á framfæri.
• Snið og útlit töflureiknis haldast upprunaleg og líta vel út – óháð því hvaða tæki þú notar.
• Skoðaðu gögn sjónrænt með nýjum gerðum grafa, eins og hríslugrafi, geislagrafi og fossgrafi.
KRÖFUR
Þessi útgáfa af Excel er búin til fyrir farsíma og spjaldtölvur (með skjástærð 10,1 tommu eða minni). Á þessum tækjum er hægt að skoða, búa til og breyta Excel-töflureiknum ókeypis. Til að nota ítarlega eiginleika þarf gilda Office 365-áskrift. Frekari upplýsingar er að finna á www.office.com/information.
Hægt er að skoða töflureikna ókeypis í stærri spjaldtölvum, fartölvum og borðtölvum. Til að búa til og breyta töflureiknum þarf gilda Office 365-áskrift. Með Office 365 fylgja nýjustu skjáborðsútgáfur af Word, Excel, PowerPoint, OneNote og Outlook – sem mælt er með fyrir borðtölvur og fartölvur. Þú getur skráð þig fyrir Office 365 í forritinu og fengið einn mánuð frían þegar þú skráir þig í fyrsta sinn.
* Continuum fyrir síma er aðeins í boði á völdum Windows 10-úrvalssímum. Aukabúnaður sem er samhæfur Continuum þarf að vera til staðar ásamt ytri skjá sem styður HDMI-inntak.